Leita eftir vöruflokk:

Persónulegar Barnabækur

My Design málanleg stígvél

Persónuleg Snuð - Latex

Persónuleg Snuð - Silikon

Persónuleg Hljóðkort

Persónulegar Veggklukkur

Persónulegar Íþróttaklukkur

Persónulegir Sundpokar

Persónuleg Snyrtiveski

Gerðu barnið þitt að aðalsöguhetjunni í bókunum okkar. Í sögunni kemur nafn barnsins ítrekað fram ásamt aldri, stað og nöfnum þriggja vina. Bækurnar innihalda 24 fallega myndskreyttar blaðsíður og eru með harðri kápu. Afgreiðslutíminn er 5-10 virkir dagar.
Ævintýrið mitt með dvergunum sjö
Dvergarnir sjö hafa beðið söguhetjuna (barnið þitt) og vini hennar um að hjálpa sér. Búið er að eitra fyrir Mjallhvíti og þurfa þeir hjálp við að finna Karl konungsson til að endurvekja Mjallhvíti. Ath: móðir söguhetjunnar kemur fram í bókinni.
Verð : 2990 ISK
Kaupa!
Ævintýrið mitt með hafmeyjunum
Söguhetjan (barnið þitt) og vinir hennar fá upplýsingar um að Neptúnus konungur hafmeyjanna og allar hafmeyjur hafsins séu fangar hins vonda Trítons og þurfi á hjálp að halda. Vinirnir breytast í hafmeyjur og lenda í skemmtilegu ævintýri á hafsbotninum.
Verð : 2990 ISK
Kaupa!
Ævintýrið mitt með konungi ljónanna
Söguhetjan (barnið þitt) og vinir hennar lenda í spennandi ævintýrum í Afríku þegar þau rekast á ljónin í dimmum helli í miðjum frumskóginum. Þau hjálpa þeim að komast undan vondum veiðimanni og í þakkarskyni er haldin stór veisla fyrir vinina.
Verð : 2990 ISK
Kaupa!
Ævintýrið mitt með risaeðlunum
Í þessu ævintýri finnur söguhetjan okkar og vinir hennar stór og framandi egg. Þau eru stödd í landi risaeðlanna þar sem þau lenda í spennandi ævintýrum á för sinni um landið. Gaman verður að fylgjast með hvernig vinirnir leysa úr ævintýrum sínum.
Verð : 2990 ISK
Kaupa!
Ævintýrið mitt með risanum
Barnið þitt er prins eða prinsessa í bókinni og þarf að verja kastalann sinn gegn árásum frá illum konungi frá Vondalandi. Til allrar hamingju fer vel að lokum og haldin er stór veisla með risunum til að fagna sigrinum.
Verð : 2990 ISK
Kaupa!
Bangsi vinur minn
Falleg og skemmtileg saga þar sem aðalsöguhetjan fer ásamt vinum sínum og bangsa í afmælisveislu til Bangsalands. Á leið sinni í veisluna hitta persónurnar marga íbúa bangsalands og lenda í hinum ýmsu ævintýrum. Þegar í afmælið er komið kemur í ljós að afmæliskakan er týnd. Bangsarnir þurfa nú á hjálp hetjunnar og vina hennar að halda.
Verð : 2990 ISK
Kaupa!
Jólasagan mín
Nokkrum dögum fyrir jól bilar sleði jólasveinsins. Ef ekkert verður gert fá börnin enga jólapakka í ár frá jólasveininum. Með hjálp hetjunnar okkar og vina hennar geta börn út um allan heim átt von á gleðilegum pakkajólum.
Verð : 2990 ISK
Kaupa!
Stóri fótboltadagurinn minn
Aðalsöguhetjan (barnið þitt) fer ásamt vinum sínum á fótboltaleik á afmælisdegi sínum. Söguhetjan fær óvænt að spila með uppáhalds leikmanni sínum hjá sínu uppáhalds liði og skorar þar sigurmarkið. Ath: pabbi söguhetjunnar kemur fram í bókinni.
Verð : 2990 ISK
Kaupa!
Töfralampinn minn
Í þessu ævintýri finnur söguhetjan okkar og vinir hennar gamlan lampa. Í ljós kemur að þetta er enginn venjulegur lampi því í lampanum er andi. Vinirnir fá andann í lampanum til að hjálpa sér að koma hinum illa Jafar frá völdum. Vinirnar lenda í skemmtilegu og spennandi ævintýri í þessari sögu. Ath: Það er ekki hægt að hafa mömmu né pabba sem vini.
Verð : 2990 ISK
Kaupa!