Leita eftir vöruflokk:

Persónulegar Barnabækur

My Design málanleg stígvél

Persónuleg Snuð - Latex

Persónuleg Snuð - Silikon

Persónuleg Hljóðkort

Persónulegar Veggklukkur

Persónulegar Íþróttaklukkur

Persónulegir Sundpokar

Persónuleg Snyrtiveski

Spurt & svarað

Hvað er persónuleg barnabók?

Persónuleg barnabók er bók þar sem lesandinn verður hetjan í sínu eigin ævintýri. Bækurnar innihalda nafn barnsins, aldur, staður og vinir barnsins, og fléttast nöfnin inn í söguna. Á fyrstu síðu bókarinnar kemur fram nöfn þeirra sem gefa barninu bókina.

Er hægt að panta fleiri en eina vöru í einu?

Já. Hægt er að panta eins margar vörur og óskað er eftir í hverri pöntun. Þegar búið er að persónugera þá vöru sem óskað er eftir er varan sett í þína körfu. Smellt er á hnappann sem á stendur „karfan mín“ til að sjá pöntunina. Þegar búið er að fylla inn allar pantanir sem óskað er eftir er smellt á hnappinn „borga“.

Hversu langur afgreiðslutími er á bókunum?

Áætlaður afgreiðslutími fyrir hverja pöntun eru 5-10 virkir dagar. Við vitum þó um einhver tilfelli þar sem pöntunin hefur borist viðtakanda á skemmri tíma.

Hvernig get ég greitt ef ég er ekki með greiðslukort?

Hægt er að leggja inn á bankareikning. Þegar búið er að ýta á hnappinn „borga“ þá kemur upp valmöguleiki að hægt er að greiða með greiðslukorti eða leggja inn á bankareikning. Mikilvægt er senda tölvupóst á info@barnagaman.is þar sem nafn barnsins sem bókin er ætluð eða nafn viðtakanda er gefið sem skýring. Pöntunin verður afgreidd þegar staðfesting hefur borist í tölvupósti.

Er nauðsynlegt að fylla út bæði fornafn og eftirnafn söguhetjunnar?

Nei, það er ekki nauðsynlegt. Á fyrstu síðu bókarinnar kemur fram fullt nafn söguhetjunnar en það er einnig hægt að hafa bara fornafnið þar. Í textanum í ævintýrinu kemur bara fram fornafn hetjunnar.

Mig langar að gefa bókina sem afmælisgjöf og vil að það komi fram í bókinni. Er það hægt?

Það er ekkert mál. Í reitnum sem heitir „Gjöf frá“ er hægt að skrifa t.d.”Gjöf frá”...:

”mömmu og pabba á afmælisdaginn”

”mömmu og pabba á skírnardaginn þann 1. janúar 2006”

”ömmu og afa á 8 ára afmælisdaginn”

”Gunnu til besta vinar míns”

”Gunnu frænku á Reyðarfirði”